Til aðstandenda

Ekki voru upplífgandi fréttirnar í gær með aukningu smita í samfélaginu og verðum við að bregðast við. Við minnum á að halda sig heima finni fólk fyrir minnstu einkennum sem gætu bent til Covid smits og fara í sýnatöku. Auðvitað gildir það sama ef fólk er í sóttkví.

Heimilisfólk hefur langflest verið fullbólusett, þó ekki allir og starfsfólk fengið fyrstu bólusetningu en einstaklingar sem eru ekki fullbólusettir geta fengið veiruna og borið hana á milli og verðum við áfram að fara varlega. 

Heimsóknartakmarkanir eru eftirfarandi:

*Hjúkrunarheimilinu verður læst þannig að hringja þarf bjöllu til að komast inn.  Tilkynna þarf hvern er verið að heimsækja og á Minni og Litlu Grund verður dyravörður og heimsóknir skráðar einsog áður var.

*Óbreyttur heimsóknartími verður eða frá kl.. 13-18

*Einungis 2 gestir mega koma yfir daginn til heimilismanna, þeir mega koma saman eða í sitthvoru lagi.  Við gerum ráð fyrir að einungis nánustu aðstandendur komi í heimsókn.

*Börn yngri en 18 ára mega EKKI koma í heimsókn.

*Heimsóknargestir skulu vera með maska, spritta hendur við komu og fara beint inn á herbergi heimilismanns.

*Fara skal styðstu leið inn og út af heimilinu og ekki staldra við til að ræða við starfsfólk.  Það skal gert símleiðis.

*Heimsóknargestum er óheimilt að dvelja í sameiginlegum rýmum, eins og setustofum.

*Áfram er heimilt að bjóða heimilismönnum út t.d. í bíltúra en gæta þarft að fjöldatakmörkunum samfélagsins (10 manns) og forðast mannmarga staði. Virða þarf grímuskyldu utan heimilisins.

*Ef heimilsmaður hefur farið út þarf hann að þvo hendur og spritta sig þegar hann kemur inn aftur á heimilið.

*Við hvetjum fólk til að fara út í göngutúra og njóta útiverunnar. 

 

Gætum að persónubundnum sóttvörunum og saman komumst við í gegnum þetta eins og áður.

Mússa