Dagdvöl

Í Bæjarási er starfrækt dagdvöl fyrir Hvergerðinga sem enn búa í heimahúsum. Markmið hennar er að styðja einstaklingana til sjálfsstæðis og sjálfshjálpar og gera þeim kleyft að búa lengur heima. Tekið er mið af þörfum og getu hvers og eins, bæði hvað varðar þáttöku í þeirri þjónustu sem er í boði og eins hversu oft í viku þeir nýta sér dagdvölina. Hveragerðisbær sér um akstur til og frá heimili og góð samvinna er við heilsugæslu, heimaþjónustu og félagsþjónustu bæjarins.

Mögulegt er að nýta sér flesta þá þjónustu sem til boða stendur á heimilinu, samverustundir, iðjuþjálfun, sögustundir, leikfimi, gönguferðir, útivera og garðyrkja svo eitthvað sé nefnt. Þjónusta hárgreiðslustofu, fótaaðgerðafræðings og snyrtifræðings er í boði og greitt fyrir samkvæmt gjaldskrá. Opnunartími er virka daga frá kl. 9-15, boðið er uppá morgunmat, hádegismat og miðdegiskaffi og einngig aðstoð við böðun og lyfjagjafir.

Í Bæjarási búa nokkrir heimilismenn. Á lóðinni er ræktað grænmeti. Á sumrin eru nokkrar hænur fóstraðar sem gefa af sér egg til bakstur. Samvinna hefur verið við grunnskólann og leikskólann Undraland og hafa börn þaðan komið í reglulegar heimsóknir í Bæjarás í gegnum árin.

Heimilisstýra í Bæjarási er Steinunn Svanborg Gísladóttir.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í Bæjarási. Síminn er 480-2099 og netfangið steinunn@dvalaras.is.

Umsókn um dagdvöl fer í gegnum forstöðumann stuðningsþjónustu við eldra fólk hjá Hveragerðisbæ í síma 483-4000 eða netfanginu sigridurh@hveragerdi.is.