Væg einkenni

Var að spjalla við eiginkonuna og annan samstarfsmann um daginn.  Ég eitthvað smá utan við mig og Alda segir að ég hafi öll einkenni athyglisbrests og ofvirkni.  Ég, í alvörunni, hafði aldrei leitt hugann að þessu og brá talsvert.  Hef svo sem gert mér grein fyrir því að ég er tiltölulega virkur og þokkalega duglegur að eðlisfari, en hafði aldrei leitt hugann að þessu áður.  Fannst einhver veginn að flestir sem hefðu slík einkenni væru á einhvers konar lyfjum eða meðferðum vegna þessa.  Og ég hef aldrei tekið nein slík lyf eða spáð í einhvers konar meðferð.  Ferlegir fordómar og fáfræði af minni hálfu, en ég viðurkenni það þó, segi nánast alltaf það sem mér finnst.

Á það reyndar til að gleyma hlutum, vaða úr einu í annað, var í eldhúsinu áðan að taka úr uppþvottavélinni, datt þá í hug að sækja kjöt í frystinn niðri fyrir annað kvöld, hætti að taka úr hálfri vélinni, fór niður og tók úr þvottavélinni og setti í þurrkarann og gleymdi að taka kjötið úr frystinum.  Týni hlutum tiltölulega auðveldlega, legg þá frá mér í hugsunarleysi og man svo ekkert hvar ég skildi þá eftir.  Finn þá stundum nokkrum dögum síðar, eða bara alls ekki.  Finn ekki, þrátt fyrir talsverða leit, einhverja hluti sem eru svo beint fyrir framan mig, næ bara ekki einbeitingu í leitinni.

Þegar ég skrifa á lyklaborðið skrifa ég stundum stafi úr næsta eða þarnæsta orði, er kominn á undan mér í huganum og átta mig ekki á því fyrr en ég er í raun kominn í næsta orð, án þess að vera búinn að skrifa orðið sem er á undan.

Er eins og áður sagði frekar ör, snöggur til, og jafnvel hvatvís.  Hef þó aðeins, held ég, róast með árunum.  Hef þó gengið þokkalega í skóla hingað til en líklega hefði ég verið settur á einhver lyf ef ég hefði fæðst þrjátíu árum síðar.

Líður bara vel með þessa greiningu eiginkonunnar en velti þessum hlutum þó aðeins fyrir mér.  Ætla þó ekki að grípa til neinna aðgerða eða leita mér greiningar eða hjálpar.  Líkar bara ágætlega við mig eins og ég er.  Og líklegast hef ég bara allnokkur einkenni athyglisbrests og ofvirkni, ekki væg.  Ég segi bara eins og hálfnafni minn: „Ég er eins og ég er.“

 

 

Kveðja og góða helgi,

Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna