Fréttir

Draugagangur í Mörk

Þetta er það sem blasir við þegar fólk kemur í anddyri Markar í dag. Fatnaðurinn í Boggubúð meira að segja með drungalegu ívafi

Fann upp orðið hrekkjavaka

Ragna Ragnars þýðandi og túlkur er heimiliskona í Mörk. Hún var í Frakklandi og lærði ýmsar hliðar á málinu svo sem þýðingar og lauk þar prófi frá Sorbonne háskóla. Það er skemmtilegt að segja frá því að hún er sú sem kom með íslenska nafnið yfir halloween eða hrekkjavöku. „Ég þýddi í fjöldamörg ár bíómyndir fyrir sjónvarpið og þar var þetta orð, halloween, ítrekað að koma fyrir og mér fannst bara að ég þyrfti að finna eitthvað íslenskt orð sem ætti við. Ég hugsaði málið um stund og þegar ég var komin með orðið hrekkjavaka hringdi ég í vin minn sem var prófessor við íslenskudeild háskólans og spurði hvernig honum litist á. Hann sagði að hrekkjavaka væri fínt orð og þá var farið að nota það í kjölfarið.“

Heimilisráð fundar á ný

Í Covid hefur heimilisráð Markar legið niðri en nýlega var ákveðið að hefja fundi á ný. Heimilismenn sitja í ráðinu og koma meðal annars með ábendingar um það sem vel er gert

Aðstandandi bauð upp á lestur smásögu

Anna Lilja Jónsdóttir er dóttir heimiliskonunnar Steinunnar B. Sigurðardóttur sem býr á annarri hæð í Mörk. Hún kom til okkar í vikunni með upplestur á smásögu sem móðir hennar skrifaði. Sagan byggist á atburðum sem áttu sér stað árið 1362 í Örævasveit en þá hafði átt sér stað eldgos og sagt að ein kona hafi komist lífs af á hesti. Heimilisfólk af allri hæðinni kom til að hlusta og njóta.

Sýning í tengigangi Markar

Ólafur Sveinberg, heimilismaður á 2. hæð í Mörk, er með sýningu á verkum sínum og er þegar búinn að selja fjögur verk af fjórtán. Sýningin, er í tengigangi Markar milli hjúkrunarheimilis og heilsulindarinnar.

Bleikt allsráðandi

Bleikur klæðnaður, bleikar kökur, bleik blóm, bleikt naglalakk og svo mætti áfram telja. Starfsfólk og heimilisfólk á annarri hæðinni í Mörk lét svo sannarlega ekki sitt eftir liggja í að gera bleika daginn eftirminnilegan og sýna samstöðu með þeim konum sem hafa þurft að takast á við krabbamein.

Nýbakað bananabrauð með kaffinu

Þegar það blæs úti og rignir hvað er þá notalegra en finna ilm af nýbökuðu brauði? Svava, heimiliskona á 3 hæð í Mörk, var meira en til í að baka bananabrauð með stelpunum í gær.

Vel mætt á æfingar Markarkórsins

Vetrarstarf Markarkórsins er farið af stað af fullum krafti og vel mætt á æfingar. Kristín Waage er kórstjóri Markarkórsins og heimilisfólk og starfsfólk hjartanlega velkomið að taka þátt. Æfingar eru haldnar einu sinni í viku, á þriðjudögum, frá 10.30 til 11.30..

Uppfæra netföngin

Til stendur að senda rafræna þjónustukönnun til aðstandenda heimilisfólks á Grundarheimilunum nú í október og mikilvægt að hún komist til skila. Aðstandendur eru því beðnir um að senda á netfangið hér að neðan ef einhverjar breytingar hafa orðið á tölvupóstfangi. Aðstandendur fylla út könnunina og senda rafrænt. Einnig er könnun fyrir heimilisfólkið í sama tölvupósti sem aðstandendur eru beðnir um að fylla út með heimilisfólkinu. Sigríður Sigurðardóttir sviðsstjóri fræðslu- og gæðasviðs Grundarheimilanna gefur allar frekari upplýsingar og tekur við upplýsingum um netföng. Netfang Sigríðar er sigridur@grund.is

Notaleg stund í Mörk

Þegar laus stund gefst hvað er þá notalegra en að bjóða upp á dekurstund. Einn morguninn nýlega gengum við fram á þessa tvo starfsmenn sem ákváðu að nú væri tími til að bjóða heimiliskonum hárgreiðslu.