Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bílakjallarinn og yfirbyggðar svalir gerðu útslagið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Nú er einungis örfáum íbúðum óráðstafað í íbúðarhúsunum sem Grund festi kaup á við Suðurlandsbraut 58 – 62. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir bankaði upp á hjá Helga Ólafi Björnssyni og Ástríði Jóhannsdóttur en þau voru með þeim fyrstu sem tryggðu sér þjónustuíbúð og fluttu inn fyrir rúmu ári.
Þau búa á þriðju hæð í einu húsanna við Suðurlandsbrautina, Helgi Ólafur og Ástríður. Íbúðin er björt og falleg. Það er notalegt hjá þeim og þau hafa að eigin sögn komið öllu haganlega fyrir sem þau vildu hafa með sér.  Við tyllum okkur við dúkað borðstofuborðið.

Stigarnir voru orðnir erfiðir

„Við erum að eldast, ég er orðinn 75 og frúin alveg að komast  á þann aldur. Það eru ýmsir kvillar farnir að gera vart við sig og stigarnir voru orðnir erfiðir fyrir okkur, en við bjuggum á fjórðu hæð í lyftulausu húsi á Rauðalæknum“, segir Helgi Ólafur og bætir við að erfiðast hafi verið að fara alla stigana þegar þau komu úr innkaupaleiðangri úr matvöruverslun. „Við bjuggum á Rauðalæknum í 28 ár og til að byrja með og fram eftir öllu litum við á stigana sem fína líkamsrækt. Þegar við fórum að kíkja í kringum okkur eftir hentugu húsnæði þá vildum við gjarnan vera nálægt Laugardalnum því þar höfum við gengið saman í áratugi og kunnum vel við okkur. Það var því engin spurning þegar við vorum búin að skoða þessar íbúðir hér á Suðurlandsbraut að hér vildum við vera“, bætir Ástríður við. 

Oft fjör í ferðalögunum

Helgi og Ástríður eiga fjögur börn og níu barnabörn og þar af eru strákar sjö talsins. Það er því oft fjör þegar fjölskyldan hefur verið að hittast. Og ættmennin eru dugleg að koma í heimsókn á Suðurlandsbrautina. Helgi er frá Skagaströnd og þangað fer stórfjölskyldan oftast á sumrin. „Barnabörnin eru orðin fullorðin og búa úti um allan heim. Sá yngsti er 13 ára og hann er oft hjá okkur og mikill gleðigjafi. En þegar krakkarnir voru litlir þá var oft fjör í ferðalögunum.“

Félagsskapurinn skiptir máli

Þegar ég spyr hvernig fari um þau á Suðurlandsbrautinni láta þau vel af sér. „Hér er afskaplega rólegt og gott að búa og stutt fyrir okkur í alla þjónustu og á fornar slóðir líka þegar við förum í göngutúr. Við höfum kynnst yndislegu fólki hérna. Nágrannar sækja jafnvel blöðin fyrir hvor annan ef þeir fara snemma á fætur og fylgjast með að allt sé í lagi. Þessi félagsskapur skiptir miklu og það er öryggi að vita af notalegu fólki í næstu íbúð. Yfirleitt förum við í líkamsrækt hérna þrisvar í viku og borðum heitan mat sem okkur býðst í hádeginu. Þá hittum við gjarnan nágranna okkar og sitjum og spjöllum fyrir matinn eða eftir. Með haustinu höfum við líka fullan hug á því að taka þátt í félagsstarfinu en íbúarnir hérna eru farnir að spila saman og taka þátt í handavinnu ýmiskonar.

Sitja á yfirbyggðum svölum

Eitt það stórkostlegasta við að vera flutt hingað er bílakjallarinn. Hann gerir útslagið. Mér finnst það frábært í snjó og hálku að fara út á hreinum dekkjum og þurfa aldrei að arka í snjónum. Ganga bara beint úr bílnum í lyftuna og upp á hæðina okkar.  Svo eru það yfirbyggðu svalirnar sem lengja sumarið og stytta veturinn. Þar sitjum við mikið og höfum það notalegt. Þær eru frábær viðbót við íbúðina. Það eru líka fínir húsverðir hérna, menn sem redda hlutunum strax ef eitthvað kemur uppá. Við týndum lyklum í tvígang og það var ekki verið að tvínóna við að redda okkur nýjum lyklum. “
Helgi segir að lokum að lífið í húsinu hafi  breyst mikið frá því þau fluttu inn fyrir ári.  „Í upphafi vorum við næstum ein á hæðinni en nú er fólk meira og minna flutt inn í flestar íbúðirnar hér í húsinu. Vinur minn sem kom í heimsókn hingað til okkar varð svo hrifinn að hann er fluttur hingað á hæðina okkar.  Þetta gæti bara ekki verið betra.“

 

Sýningaríbúð

Íbúðir fyrir 60+