Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Ýmis afþreying í boði fyrir íbúa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Íbúar á Suðurlandsbraut 58 - 62 hafa nú stofnað spilaklúbb. Þeir hittast í fundarherberginu í Mörk og spila saman á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 14 - 16. Á sama tíma er lesin framhaldssaga fyrir þá íbúa sem kjósa að hlýða á upplestur og um þessar mundir er verið að lesa Ljósu, bók Kristínar Steinsdóttur. Þá koma íbúar einnig saman á þriðjudögum og fimmtudögum og eru þá að prjóna eða sinna öðru handverki sem hverjum og einum líkar. Ef boðið er upp á aðra afþreyingu á sama tíma, harmonikkuball, tónleika eða kvikmyndasýningu þá fellur þetta niður. Allar íbúar eru hvettir til að taka þátt í spilamennskunni eða handverkshópnum og nánari upplýsingar veitir Kristrún í verslun á 1. hæð hjúkrunarheimilisins í Mörk.

 

Sýningaríbúð

Íbúðir fyrir 60+