Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Sundlaug, heitur pottur og gufubað Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Fyrirhugað er að koma upp sundlaug og heitum potti í húsnæði sem nú skapast við íbúðabyggingar í Mörk þegar ökurampur verður reistur. Undir ökurampinum skapast mörg hundruð fermetra húsnæði með gluggum í austurátt. Auk sundlaugar og heita pottsins verður einnig boðið upp á gufubað og líkamsræktaraðstöðu sem og stofu fyrir nuddara og aðra sem bjóða meðferðir fyrir líkama og sál. Þetta verður sannkölluð heilsuræktarstöð. Gísli Páll Pálsson framkvæmdastjóri Grundar - Markarinnar ehf.  segir að með þessari ákvörðun sé kominn punkturinn yfir I-ið í þjónustuframboði til íbúa Suðurlandsbrautar 58 – 62 en íbúarnir sækja nú þegar margvíslega þjónustu í hjúkrunarheimilið að Suðurlandsbraut 66. "Það verður einstakt að geta farið í sund og gufubað eftir að hafa tekið aðeins á því í líkamsræktinni.  Rölta svo yfir í hjúkrunarheimilið og fá sér kaffibolla, líta í blöðin og fara í hádegismat.“

 

Sýningaríbúð

Íbúðir fyrir 60+