Framkvæmdir við byggingu tengigangs milli íbúðabygginga og hjúkrunarheimilis í Mörk eru hafnar. Sjö verktökum var boðið að taka þátt í lokuðu útboði og bárust sex tilboð. Tilboð frá Atafli ehf var lægst og var því tekið. Arkitektar voru Yrki arkitektastofa og um burðarþol og lagnir sá Hnit ehf. Framkvæmdir kunna að valda ýmsum óþægindum varðandi hávaða og aðgengi og er fólk beðið að umbera þetta í þann skamma tíma sem þetta varir. Þegar tengigangurinn verður kominn munu íbúar við Suðurlandsbraut 58 - 62 njóta góðs af því hægt verður að ganga yfir í matinn, á kaffihúsið eða í leikfimi án þess að fara undir bert loft. Fyrsta áfanga við byggingu tengigangs á að ljúka þann 1. desember en þá á gönguleiðin að vera tilbúin innandyra. Verkinu á að vera lokið næsta sumar. Samhliða þessum framkvæmdum verður með vorinu farið í vinnu í garðinum og meðal annars stendur þá til að útbúa púttvöll, setja upp gróðurhús á lóðinni, búa til göngustíga og setja upp bekki.