Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Grund eina heimilið sem bauðst til að sjá um rekstur hjúkrunarheimilisins á Suðurlandsbraut Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst


Grund sendi í morgun inn tilboð um að reka hjúkrunarheimilið við Suðurlandsbraut 66. Tilboðsfrestur rann út klukkan ellefu í morgun og var Grund eini aðilinn sem bauðst til að sjá um reksturinn. Niðurstaða mun liggja fyrir eftir um það bil tvær vikur. Grund festi nýverið kaup á þremur íbúðabyggingum við hlið hjúkrunarheimilisins á Suðurlandsbraut. Fyrirhugað er að íbúum þar bjóðist ýmis þjónusta í framtíðinni en unnt er að festa sér þar íbúð með íbúðarréttarfyrirkomulagi. Alls er um 78 íbúðir að ræða en fólk er þegar búið  að festa sér um þriðjung íbúðanna.

 

Sýningaríbúð

Íbúðir fyrir 60+