Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Mörkin, þjónustuíbúðir
Iðnaðarsalt hefur ekki verið notað í matargerð í Mörk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fram hefur komið í fréttum að Mörk hafi verið eitt þeirra fyrirtækja sem keypti iðnaðarsalt af Ölgerðinni. Mörk keypti í nóvember sl. einn poka af umræddu salti en það hefur fram að þessu ekki verið notað í matargerð á heimilinu. Saltinu verður skilað.
 
Þorragleði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudaginn 20. janúar verður þorragleði í Mörk frá klukkan 11 - 14.  Borð svigna undan þorramat að hætti hússins. Markarbandið leikur undir borðhaldinu.
 
Bílakjallarinn og yfirbyggðar svalir gerðu útslagið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Nú er einungis örfáum íbúðum óráðstafað í íbúðarhúsunum sem Grund festi kaup á við Suðurlandsbraut 58 – 62. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir bankaði upp á hjá Helga Ólafi Björnssyni og Ástríði Jóhannsdóttur en þau voru með þeim fyrstu sem tryggðu sér þjónustuíbúð og fluttu inn fyrir rúmu ári.
Þau búa á þriðju hæð í einu húsanna við Suðurlandsbrautina, Helgi Ólafur og Ástríður. Íbúðin er björt og falleg. Það er notalegt hjá þeim og þau hafa að eigin sögn komið öllu haganlega fyrir sem þau vildu hafa með sér.  Við tyllum okkur við dúkað borðstofuborðið.

Nánar...
 
Tai Chi námskeið og lífssögugerð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Tvennskonar námskeið standa nú íbúum á Suðurlandsbraut 58 - 62 til boða. Annað námskeiðið snýr að lífssögugerð en hitt snýr að Tai Chi jafnvægisæfingum. Allar nánari upplýsingar veittar í versluninni á 1. hæð hjúkrunarheimilisins í Mörk.

 
Gleðilega hátíð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 4

Sýningaríbúð

Íbúðir fyrir 60+